Badmintonbullið litla....

14.04.2008 13:57:23 / Snjólaug

Heimsreisa

Jæja þið fólk sem kíkið enn þá hér inn á þá vildi ég auglýsa hina mögnuðu heimsreisusíðu okkar Önnu Maríu, en slóðin á hana er www.123.is/bakpokastelpur - endilega kíkja þarna inn á;) en við erum einmitt að fara út eftir aðeins 5 litla daga eða á laugardaginn:) við lofum mörgum bloggum og mörgum myndum VEIIHEIHEIII

luvluvluv, Snjólaug

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 10:12:31 / Snjólaug

Heimsreisan mikla:D

gvuuuð ég er var orðin svo leið á þessari Gleðileg jól færslu! vá það er of langt síðan jólin voru. Nýtt ár komið og svona. Flott að skrifa fyrstu færslu ársins þann 28.jan;) Hrefna átti nottla afmæli 2.janúar og það var ekki það fyrsta sem ég hugsaði að fara að blogga heldur bara knúsa stóru stelpuna.

en núna gengur lífið bara áfram og hver dagurinn líður sem þýðir það að það styttist í mína svakalegu heimsreisu með Önnu Maríu.
Ég er sem sagt að fara út til London þann 19.apríl og á flug kl.07:15 á laugardagsmorgni. Svo kem ég heim á fimmtudeginum 10.júlí um 4 leytið. Já þið getið strax farið að plana welcome home partí og svona e-ð skemmtilegt. hehe en allavega, þá ætlum við nú að halda úti bloggi í hinum stóra heimi þannig að þá koma vonandi inn fullt af mjög skemmtilegum bloggum vikulega eða svo. Ætla nú að vera mun duglegri en á þessari síðu hér hehe, því ef ég væri jafn löt og á baddóbullinu þá myndi kannski koma með í mesta lagi 2 blogg á þessum 12 vikum sem ég er úti. En svo ég segi ykkur meira frá ferðinni þá förum við til London 19.apríl, verðum þar í einn dag, svo flug til Thaílands, verðum þar í 10 daga og hittum Hörpu, Ragnhildi og Möggu sem eru einmitt að enda sína heimsreisu þar. Svo er það Kína í 3 vikur, Ástralía í 3 vikur, Fiji eyjar í 1 viku og svo að lokum Bandaríkin í 3 vikur. Samtals 12 vikur og vááá við erum alveg að deyja úr spenning. Anna elskar ekki pöddur og þorði því ekki til S-Ameríku í Amazon og svona sem mér finnst mega spennó. En á það þá bara inni;) Hún er búin að stimpla mig sem verndara hennar gegn pöddum. Ok, ég er ekki jafn hrædd og hún við skordýr en ókei, ég myndi ekki hoppa hæð mína af gleði ef ég myndi hitta eins og eina loðna kónguló. En sem sagt, í dag eru aðeins 82 dagar í brottför oh myy. En í millitíðinni á ég nú eftir að fara eins og 2 skíðaferðir - jáh ég er nú ekkert óheppin;) 

næst þegar ég blogga á þessa síðu þá mun ég örugglega bara segja ykkur slóðina á heimreisubloggið okkar Önnu. En við ætlum nú ekki að stofna það aaalveg strax.
ble í bili:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 13:14:00 / Hrefna

Gleðileg jól!!

Elsku bestu börnin mín, ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla:*  Vonandi hafið þið það sem BEST yfir jólin og njótið þess að vera með fjölskyldunni og borða mikið mikið. 

En það eiga tvö jólabörn afmæli í dag því hann Danni okkar litli Thomsen á afmæli og er drengurinn 19 ára gamall.

 Til hamingju elsku Danni!

Svo eru hér fáeinar myndir sem sýna hvað Danni er búinn að stækka síðan við fórum í fyrstu DK ferðina okkar 2002

hehe......sveitt
Þessi er nú algjör perla af honum Kristján kínverska og afmælisbarninu
ennþá lítill snúlli....
Í dag er drengurinn hins vegar orðinn stór og kallar ekki allt ömmu sína!!
Til hamingju aftur snúllinn, þú verður alltaf litli Danni í bornholm í okkar augum;)
En ég verð að deila því hér hvað ég fékk í jólagjöf, OMG, ég fékk áritaðan Allt fyrir ástina disk með Palla og hann skrifaði, "Hrefna ég elska þig" OMG!!!!:P hehe og plaggat og dagatal og þetta er allt komið beinustu leið uppá vegg...
Hann er svo laaaaaang flottastur!!
Allavega, ég er farin að gera mig klára í jólaboðin.....
jólaknús
Hrefna Rós  

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 17:02:50 / Hrefna

Stúfur kemur í nót!!!!

Víííjjjjj uppáhaldsjólasveinninn minn er að koma til byggða í nótt og þess vegna ákvað ég að henda inn einni færslu í tilefni þess!

Hann er sætastur!

En ég verð nú samt að svara henni Ástu hérna með bloggin, þið bloggið ekki næstum eins og oft og við gerðum í den tid, samt eruð þið miklu fleiri!

En allavega, í gærkvöldi smelltum við okkur nokkur í bekknum á Ítalíu í tilefni prófloka.  Og ég fékk mér EKKI margaritu eins og ALLTAF!  Ég fékk besta tagliatelli sem ég hef smakkað á ævinni, með kjúklingi og sveppum, algjört nammi namm:P  Ég mæli hiklaust með því!

En við Snjólla og hún litla Anna María okkar ætlum að kíkja á jólagjafakaup í kvöld:haha:

  • En núna eru 11 dagar í jólin
  • og þá eru 18 dagar í áramótin
  • og jafnframt 20 dagar í 20 ára afmælið mit!!:)

Ég og vinkona mín hún Inga erum einmitt að plögga einhverju og ætlum að reyna að halda uppá afmælið okkar saman:haha:

En ég er byrjuð að dýrka Pál Óskar, mig langar ógeðslega í dagatalið sem hann er að gefa núna! 

og svo dýrkar ég líka lagið "Leiðin okkar allra" með Hjálmum

Allavega, ég vona að þið njótið aðventunnar og þið ykkar sem eigið einhver próf eftir, GOTT Á YKKUR!! nei djók!:P Gangi ykkur rosalega vel, þetta er bráðum búið!

jólakveðja
Hrefna Rós 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 13:11:33 / Hrefna

Tuttugu ára blómarós!!!

Elsku snúllan mín hún Snjólaug átti afmæli 13. nóvember.

Þar sem oft er mikið að gera kemur þetta afmælisblogg fáeinum dögum of seint, en eins og maður sagði, betra er seint en aldrei......

.....en þetta var enginn venjulegur afmælisdagur, þetta er nefnilega afmælisdagur númer 20.....(eða eiginlega númer 19 sem þýðir að hún er 20 ára!!!:)

Að vanda er hér smá myndasyrpa af dömunni

Þessa rakst ég á þegar ég googlaði orðið "kynþokki"

Þessi kom þegar ég googlaði "homeblest"

Svo kom þessi þegar ég skrifaði "innefli"

Svo kom þessi þegar ég skrifaði "kærastinn hennar Hrefnu"

Þessi kom svo þegar ég skrifaði "krúttlegasta kærustuparið"

 

Þessi kom þegar ég skrifaði "afmælisprinsessa"

Svo kom þessi þegar ég skrifaði "afmælisknús frá Hrefnu til Snjóllu"

Svona er google skemmtilegt:)

Allavega, til hamingju enn og aftur elskan:*

luv
þín
Hrefna Rós


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 12:59:41 / Snjólaug

börnin góð

Elsku börnin góð.
Eigum við eitthvað að ræða þá tíma þegar þetta blogg var svo virkt að það kom fyrir að það var bloggað 4-5 sinnum á dag! Núna erum við bara búin með okkar kvóta og bloggum bara þegar okkur langar, enga svona pressu neitt þið þarna litlu badmintonbombur;) Finnst að þið mættuð vera virkari:) Skora á alla að kíkja hérna til baka á gamlar færslur frá 2004, eða þá á eldgamla bloggið www.folk.is/badmintonbull. Haha góðir tímar, þegar Danni var að reyna að troða sér með okkur Hrefnu, hehe. Minnir mig soldið á Nökkva og badmintonbomburnar. En allavega kids,
pís át.

Snjólaug


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 18:11:21 / Hrefna

Ó, erum við með blogg??

Já, það eru komnar aldir, tja eða kannski svona mánuður síðan ég bloggaði síðast.....

Málið er að það er allt í sama farinu hérna, skólinn, badmintonið og humm....skólinn þannig það er mjög lítið að blogga um í bili hjá mér.

Á næsta ári þá fer maður nú til úglandanna og þá verður vonandi ýmislegt hægt að blogga um eins og hjá henni Jórunni minni sem ég er að fara að heimsækja eftir tvær vikur!!

www.blog.central.is/josan

Annars kíkti ég á heimilið hennar Önnu okkar Margrétar um helgina og lumar hún á aldeilis glæsilegri íbúð í hjarta borgarinnar, nánar tiltekið á Grettisgötunni rétt hjá Vegamótum.  Tók þar á móti mér kettlingurinn Orka og var hún vægast sagt krúsídúllusnúlla en því miður mátti ég ekki fara með hana heim:$  Eftir heimsóknina langaði mig rosalega mikið í smá kittylove þannig ég kíkti til brósa þar sem kisufrændi min hann Snúlli var tilbúinn að fá svokallað "bolluklór" sem hann elskar......(held ég endi eins og crazy cat lady í simpsons).  En hann Snúlli minn er sko badmintonkisi með meiru eins og þessi mynd ber með sér!

En nóg af kisusögum...ég skrifa meira á dýralandssíðuna fyrir aðdáendur...;)

Nú á ég að vera að læra en hvað geri ég þá, vafra um netið og kíkti á upprennandi TBR stjörnunar í badmintonbombunum aka. DA BOMBS

endilega kíkið á bloggið þeirra, yfir 50 comment á nýjast blogginu mar!;)

http://blog.central.is/badmintonbombur

Svo eru þær líka svo sætar....

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.....
Kv.
Hrefna Rós

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 17:40:35 / Snjólaug

kreisí

Æj greyið Britney..., allir svo vondir við hana.

http://www.youtube.com/watch?v=kHmvkRoEowc

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 00:23:21 / Atli

atsjú

Eitt stykki blogg

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 20:52:06 / Hrefna

Fallega prinsessufrænkan mín:*

Ég var að eignast litla frænku í gær....liggaliggalái!!:haha:

Hún er algjör draumur:*

En fyrir þá sem ekki vita þá er þessi prisessa dóttir hennar Elsu minnar, fleiri myndir og fæðingarsöguna má nálgast hér http://elsanielsen.blog.is

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 01:02:14 / Hrefna

Tvær spurningar

Númer eitt:

Snjólaug, viltu setja inn myndir frá því í útilegunni?

 Númer tvö:

Danni, af hverju varstu að lita hárið á þér svart?!?!?  Ég segi nú bara það sama og þú sagðir um svarta naglalakkið mitt!

 Og svo eitt að lokum.......við Snjólla erum að fara til Eyja eftir tvær vikur!!!!:haha::haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 21:13:16 / danni

Jájá svona er gaman í DK!

 

Jájá hérna eru samankomnar nokkrar skemmtilegar myndir af ferðinni okkar hérna í DK! Eins og þið sjáið eru búnir að koma alveg hellingur af gestum og er það bara gaman !!!

 

Later

kv.thjoms!


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 17:47:03 / danni

DANMÖRK!

Jæja Sælir Íslendingar! Danni hinn danski talar hér frá köpen. Hérna er ég núna búinn að dvelja í nákvæmlega 29 daga held ég :P og er þessi ferð búin að vera mögnuð í alla staði !!!!!!

Þessi ferð s.s byrjaði má eigilega segja í afmælinu hans Einars Óskars. þar var maður heima hjá honum eitthvað að slappa af og fór þaðan í eitt stykki útskriftarveislu og var þaðan farið í svona lítið party.. eftir það var Danni Thjoms orðinn svoldið sibbinn svo eg fór heim KL 5 um nóttina og átti að vera sóttur KL6 s.s klukkutíma seinna. Ég stilli vekjaraklukkuna en neinei ég vakna ekki við hana fyrr en pabbi vekur mig KL 7 og segir að það se verið að sækja mig s.s klukkutíma of seint þar fór ég inn í bílinn og steinsofnaði alla ferðina og var maður mjög slappur í flugvelinni og loksins komst maður heim á JENS OTTO KRAGHS GADE númer 7 þar sem við bjuggum allan júní mánuð !

Daginn eftir ákváðum við strákarnir að kíkja á vinnurnar sem við vorum búnir að redda okkur frá Íslandi en neinei þá kom í ljós að okkur var boðið hlutastarf fyrir 2 á Restaurant svo við vorum ekki sáttir svo við fórum á annan stað þar sem var buið að redda vinnu fyrir einum á hóteli sem heitir GRAND hotel þar vorum við bunir að redda vinnu fyrir einn en á vinnufundinum við aðalgaurinn þá fengum við að vita að það var opið starf fyrir 2 svo 2 af okkur gátu byrjað að vinna á þessu ágæta hóteli

Stax eftir þennan fund fannst mér þessi vinna bara ekkert spennandi svo ég sagði við strákana að þeir mættu taka þessa vinnu og eg myndi redda mer einhverstaðar annarsstaðar, ég tel það hafa verið besta sem ég hef gert í þessari ferð :) því aðeins 4 dögum seinna var eg kominn með eina þægilegustu vinnu og er hún hjá einu stærsta fasteignafyrirtæki í Skandinavíu og kallast það KEOPS. Þar er eg búsettur núna og fæ frían morgunmat og Gedveikan hádegismat sem er annaðhvort lambakjöt, purusteik og bara allt það besta ! :D

Svona var þetta búið að vera í smá tíma þar til að það var komið að einu stærsta sem við erum búnir að gera hérna úti og það var að fara á þessa MÖGNUÐU Justin timberlake tónleika og mun ég aldrei gleyma þeim tónleikum þótt að það hafi reyndar verið margt sem eg mundi ekki eftir daginn eftir haha. En jú þessir tónleikar voru i Parken og voru þar 55þúsund danir allir i rosalegu stuði og hefur hann Justin kallinn unnið stóran hluta af hjarta mínu ! :D Og þar keypti ég meir eitt stykki svartan justin timberlake Wifebeater bol og eru það klárlega bestu kaup ferðarinnar ! já og ekki má gleyma að við vorum i v.i.p boxi á fucking tónleikunum þar sem það var þjónn að þjóna okkur! Juju við fengum fría miða í Boxið sem Baugur átti helvíti næs!

 

Eftir þessa mögnuðu tónleika byrjuðum við að lifa okkar eðlilega líf aftur :P

Núna á laugardaginn fórum við einmitt á aðra tónleika þar sem danskar hljómsveitir réðu ríkjum þar á meðal, NIK og JAY, Shjubidua,KIM LARSEN og rúsínan í pylsuendanum D.A.D sem er Disneyland after dark sem eru trítilmagnaðir.

það tók mig smá tíma til þess að koma gaurunum í smá stuð fyrir þessa tónleika en það heppnaðist svona semi en eftir tónleikana held ég að við höfum allir verið sammála um að þeir voru ekkert síðri en JT tónleikarnir! Þeir s.s D.A.D tóku svo eitt lag sem kallast i´m sleeping my day away og þá gjörsamlega trylltist líðurinn og þar á meðal ég(danni) og endaði með að vörðurinn á tónleikunum tók í mig og hótaði að henda mér út og ég varð eins og einhver Kári(pulsa) sagði hmm.. okey en þá komumst við að þeim niðurstöðum að Danir eru strangari en íslendingar hvað gjæslu varðar því það hefði aldrei verið gert neitt á íslandi með þetta sem eg var að gera. en ju magnaðir tónleikar þarna á ferð!

 

 

Annars núna vorum við að flytja í aðra íbúð á sólbakken og er hún mun minni og erum við enþá að koma okkur almennilega fyrir en það verður ágætt ! :D

Svo kemur hann Sindri á miðvikudaginn og verður það bara gaman!

 Svo vil ég lísa óánægju minni á hvað fólk er ekkert að bjalla í drenginn! er buinn að fá 2 símtöl alla ferðina frá Bjarka og frá Einari svo endilega grípið tólið og hringið i mig og drífið ykkur að kaupa helgarmiða hingað til köpen! Drífa sig!!

 

Kv.Danni Thoms ! 


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 19:37:03 / Hrefna

Árbæjarsafn og Ad astra

Jæja blogg??  Það er langt síðan ég hef haft lausa stund til þess að setjast niður við tölvuna og henda inn einu litlu bloggi!

Dagurinn hefur verið erfiður, eða réttara sagt nóttin!  Ég fékk nebblega gubbupest!!! Ojojojojojoj það er það ógeðslegasta sem til er!!  Nú líður mér samt betur þannig ég get vonandi farið í vinnuna á morgun og tekið á móti Sumarskóla TBR:haha:

Sumarið er búið að vera gjörsamlega pakkað! Það er of mikið að gera hjá mér þar sem ég er að vinna á Árbæjarsafninu, fylgja þessum hlaupa og lyftingaprógrömmum og mæta á stjórnarfundi, skrifa fundargerðir og vinna tilfallandi störf hjá einkahlutafélaginu Ad astra.

Starfið á Árbæjarsafni er fjölbreytt og skemmtilegt, til dæmis byrjaði ég daginn í gær á því að mjólka kú!!  Þetta var án efa eitt af því furðulegasta sem ég hef gert, settist upp í bílinn minn, keyrði í vinnuna, setti á mig skuplu og klæddi mig í lopapeysu og bomsur en var samt sem áður ennþá í minipilsinu mínu svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var smart!!  Svo var það að taka sér fötu í hönd og júgursmyrsl, og ekki mátti gleyma kaðlinum til að binda kusu og kálfinn, Fríðu sem er algjör dúlla!!  Svo var það að byrja að handmjólka þessa fögru kvígu og það var alls ekki auðvelt!!  Kusa var ekki alveg sátt og sparkaði reglulega í fötuna:$  Ég mjólkaði nú minnst heldur reyndi að klappa henni og róa hana á meðan Berglind, yfirmjaltarkona mjólkaði sem mest hún mætti!  Þetta var sko meiriháttar mál og ég fór að hugsa um mjaltarkonurnar forðum daga, til að mynd þær sem störfuðu í Viðeyjarklaustri, þar voru 120 kýr og 6 mjaltarkonur ss. 20 kýr til mjólkunar á manneskju, tvisvar á dag, ss. 40 mjaltir á dag!! 

Allavega, mér fannst svolítið fyndið að byrja kvennréttindadaginn á því að mjólka kú;)

Ég er í svo flottum búning í vinnunni að það nær ekki einni átt!!;)

Hversdags er ég einhvernvefin svona, í dagtreyju, með skuplu, svuntu og sjal.

Svona er ég hins vegar þegar ég nenni, í 19. aldar upphlut með einstaka skotthúfu sem veldur mismikla lukku!!  Eitt er á hreinu, það er ekkert mál að hözzla út á þessa húfu:D

Jæja, ég ætla að njóta þess að hvíla mig aðeins í kveld svo ég verði spræk á morgun og þess vegna ætla ég ekki að hafa þetta lengra......

over and out
HrefnaRós


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 17:21:59 / Snjólaug

Fuerte

Jiiii hvað allt er dautt á þessari síðu maður.
Allavega, þá er ég komin heim frá Fuerteventura úr minni útskriftarferð. Það er ekki hægt að neita því að þar var mikið fjör og mikið gekk á, ó já.
Hér koma nokkrar vel valdar myndir úr ferðinni sem lýsa stemmaranum.

Sem sagt, ferðin einkenndist af...

meeega stuði, allavega hjá þeim tveim;) nei djók, hjá öllum auðvitað

fáránlega flottri strönd. Sandur frá Sahara ó je beibí

hehe, pítsu, pringlesi og fleira góðu

 

 

 

MOSKÍTÓBITUM!!!! tékkiði á fyrri myndinni, sko bitið er jafn stór og kúlan þið skiljið. Og klæjaði mig, JÁÁÁ! nokkrar svenflausar nætur út af þessum djöflum.

tjilli í sundlauginni á vindsæng. NIIICE

ýmsum pöddum, þessi myndarlega eðla var þarna sem fastast fyrir utan íbúðina okkar í ca.2 daga. Myndarleg eðla hér á ferð eins og þið sjáið. Einnig voru þarna pöddur í tonnatali, eins og kóngulær, kakkalakkar, og fleiri góðir vinir okkar.

skemmtistaðurinn Waikiki var í miklu uppáhaldi þar sem hann var sá eini sem var opinn til 5. Þarna var einmitt góð róla sem maður skemmti sér vel í.

og hér erum við svo við vinkonurnar í lokinn:) mjög góðir herbergisfélagar án efa.

Vá hvað Ísland er samt best í heimi.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49